Fiskmarkaður Vestfjarða hf. hefur gefið út nýja gjaldskrá.
Söluprósenta fisks verður 3%.
Annar kostnaður seljenda vegna löndunar, móttöku, vigtunar, slægingu, flokkunar og ís verður óbreyttur og verður því áfram með því lægsta sem þekkist hjá fiskmörkuðum á Íslandi.
Fiskmarkaður Vestfjarða hf. hefur kappkostað að veita viðskiptavinum sínum góða þjónustu og verður þar engin breyting á.
Áfram verður boðið upp á 24 tíma þjónustu alla daga vikunnar.
Einnig mun Fiskmarkaður Vestfjarða aðstoða viðskiptavini sína við útvegun krókaflamarks og aflamarks, viðskiptavinum sínum að kostnaðarlausu.